Ethel ein af leikmönnum leiksins
Sævar Jónasson

Úrslitakeppni kvenna heldur áfram í kvöld þegar tveir leikir fara fram í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Í Úlfarsárdal tekur Fram á móti ÍR eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna á útivelli á laugardaginn 27-31.

Landsliðsmarkvörðurinn, Ethel Gyða Bjarnasen markmaður Fram varði 13 skot í leiknum og var með 32% markvörslu í leiknum. Vignir Stefánsson sérfræðingur í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans var hrifinn af hennar frammistöðu í leiknum á laugardaginn.

,,Þrátt fyrir að Fram hafi haft undirtökin framan af og verið klókar varnarlega og með Ethel í markinu sem var mjög góð allan leikinn og ein af leikmönnum leiksins. Hún var með margar góðar vörslur, vítaköst, dauðafæri. 5-1 vörn Fram var góð þar sem þær voru að taka Söru Dögg aðeins út og rugla ÍR í ríminu en einhvernveginn steig Ethel Gyða upp," sagði Vignir Stefánsson.

Leikur Fram og ÍR hefst klukkan 19:30 í kvöld en klukkan 18:00 mætast KA/Þór og Haukar en þar eru Haukar 1-0 yfir í einvíginu. Vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top