Handkastið greindi frá því fyrst allra fjölmiðla í heiminum í gær að Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins væri á blað hjá danska handknattleikssambandinu um að verða næsti aðstoðarþjálfari Nikolaj Jacobsen með danska landsliðið. Viðræður Handknattleikssambands Íslands við Snorra Stein Guðjónsson um landsliðsþjálfarastarfið virðast ganga hægar en vonast var til og samkvæmt heimildum Handkastsins er ástæðan sú að Arnór Atlason sé í viðræðum við danska sambandið. Snorri Steinn hefur lagt mikla áherslu á að Arnór Atlason verði áfram hluti af þjálfarateymi sínu í viðræðum sínum við HSÍ. Arnór er nú þegar við störf hjá danska félaginu TTH Holstebro samhliða verkefnum sínum með íslenska landsliðinu og hefur því sterka tengingu við danskan handbolta. Talið er að það geti haft áhrif á framgang mála í viðræðunum. Jón Halldórsson, formaður HSÍ segir í samtali við Vísi að unnið sé að samningum og segir stöðuna vera í virkri vinnslu. „Við erum á kafi á samningaviðræðum,“ segir Jón í samtali við Vísi. „Við viljum bæði Snorra og Arnór. Það styttist í fréttir af þessu. Við erum bara í góðu samtali við umboðsmenn þeirra. Þetta er allt á réttri leið.“ Hann leggur áherslu á að það sé skýrt markmið sambandsins að halda þeim báðum innan teymisins. „Það er bara skýrt takmark, það er það sem við viljum.“ Í samtali við TV 2 í Danmörku segir danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen vera með nokkur nöfn í huga sem næsta aðstoðarlandsliðsþjálfara. Hann segist taka mikinn þátt í ráðningarferlinu. ,,Fyrir mitt leiti er það mikilvægt að næsti aðstoðarlandsliðsþjálfari sé einhver sem ég næ persónulega að tengja vel við sjálfur. Ég er með nokkra mögulega arftaka Kronborg í huga. Nú er bara spurningin hvort við fáum einhvern til að taka stökkið til okkar," sagði Nikolaj Jacobsen við TV 2.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.