Það varð ljóst eftir lokaumferðina í Olís-deild kvenna að Selfoss myndi falla í Grill66-deildina eftir að hafa endað neðstar í Olís-deild kvenna. Selfoss og Stjarnan voru jöfn að stigum fyrir lokaumferðina en Selfoss var með betri innbyrðisstöðu. En Stjarnan náði á einhvern ótrúlegan hátt jafntefli gegn Haukum í lokaumferðinni á meðan Selfoss tapaði illa gegn ÍR og þurftu þar með að sætta sig við fall úr deildinni. Handkastið heyrði í Eyþóri Lárussyni þjálfara Selfoss á dögunum og spurðu hann út í tímabilið. ,,Að sjálfsögðu voru mikil vonbrigði að falla. Tilfinningin eftir tímabil er auðvitað súr. Við lögðum af stað í tímabilið með mikið breytt lið milli ára. Misstum einhverjar frá okkur og svo var Perla auðvitað í orlofi. Það tók okkur aðeins tíma að slípa okkur saman en við komum brattar til leiks og með þá von um að bæta okkur jafnt og þétt. Það er svo ýmislegt sem gerist á leiðinni, við missum snemma sterka pósta í meiðsli nær allt tímabilið, fleiri í fæðingarorlof og það auðvitað hefur áhrif. Samhliða verðum við svo auðvitað að horfa innávið enda margt sem við getum horft á eftir á og sagt að hér þurfum við að gera betur, þar verðum við að læra," sagði Eyþór sem bendir þó á að það séu fullt af hlutum sem Selfoss geti tekið jákvætt úr tímabilinu. ,,Selfoss spilaði í fyrsta sinn í Evrópukeppni kvennamegin sem var mjög góð reynsla. Þá fengu margar yngri ný og stærri hlutverk sem er mikilvægt fyrir framhaldið." Verða einhverjar breytingar á leikmannahópnum í sumar? ,,Það verða alltaf einhverjar breytingar. Við viljum þó að þær verði í lágmarki. Við viljum horfa til lengri tíma með þennan hóp. Selfoss hefur sýnt að það er hægt að fara niður og bæta sig. Þrátt fyrir mikla yfirburði þegar við spiluðum þar síðast að þá tók liðið miklum framförum og átti síðan gott tímabil í fyrra. Síðan þarf að halda kjarnanum til þess að komast lengra. Í dag erum með góða blöndu og okkar yngri leikmenn hafa tekið mörg góð skref í vetur og fleiri á leiðinni. Við horfum því björtum augum til framtíðar." Hann segir að leikmannamál liðsins séu í vinnslu. ,,Það eru tilkynninga að vænta á allra næstu dögum," sagði Eyþór sem staðfestir að hann verði áfram með liðið á næsta tímabili. Selfoss vann Stjörnuna í þriðju síðustu umferð deildarinnar og fór þar með upp fyrir Stjörnuna fyrir síðustu tvær umferðirnar. Stjarnan náði hinsvegar í tvö jafntefli í síðustu tveimur leikjum liðsins gegn Haukum og Fram og fór uppfyrir Selfoss. ,,Mín tilfinning var alltaf sú að við þyrftum einn sigur í viðbót, eða að minnsta kosti eitt stig. Það endurspeglaðist þó því miður ekki í okkar frammistöðu gegn ÍR. Það er eitthvað sem ég tek á mig og er miður." Mikil umræða hefur verið innan handboltahreyfingarinnar um að stækka Olís deildina í 10 lið fyrir næsta tímabil. Hver er skoðun Eyþórs á því? ,,Átta liða úrvalsdeild hefur að mínu mati aldrei verið málið, þó að þetta fyrirkomulag henti ákveðnum liðum vel. Við eigum að freista þess að fjölga liðum með Olísdeildar umgjörð og á sama tíma eiga möguleika á að fjölga liðum í meistaraflokki með annað hvort U-liðum eða mögulega venslaliðum. Til þess að það sé hægt þurfa fleiri lið rými til þess að byggja upp Olísdeildarlið. 10 liða deild og 8 liða úrslitakeppni væri gott fyrsta skref. Það er gott fyrir mig að geta tjáð mig um þetta núna enda mun þessi tillaga ekki hafa áhrif á okkur á næsta tímabili," sagði Eyþór Lárusson að lokum í samtali við Handkastið.Verður áfram með liðið
Gott fyrsta skref að fara í 10 liða úrvalsdeild

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.