Sara Björg framlengir við Víking

Víkingur tilkynnti núna rétt í þessu á sínum samfélagsmiðlum að handknattleikskonan Sara Björg Davíðsdóttir hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2028.

Sara Björg er fædd 2004 og getur leikið allar stöðurnar fyrir utan. Er hún uppalin hjá Fjölni í Grafarvogi og hefur hún einnig verið hjá Gróttu og FH.

Sara Björg lék 21 leik í vetur með Víkings liðinu og skoraði í þeim 34 mörk. Má leiða að því líkum að hún verði í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu á næsta leiktímabili en liðið mun líklega taka nokkrum breytingum frá því í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top