
Janus Daði Smárason er í leikmannahópi Pick Szeged í dag þegar liðið fær pólska liðið, Industria Kielce í heimsókn í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 16:45 en seinni leikur dagsins sem hefst klukkan 18:45 er leikur Sporting og Wisla Plock. Janus Daði hefur verið að glíma við meiðsli á öxl frá því á Evrópumótinu og gat til að mynda ekki leikið með íslenska landsliðinu í æfingaleikjunum hér á landi gegn Svíþjóð um miðjan mars mánuð. Hann sagði í samtali við Handkastið á þeim tíma að stefnan væri að koma til baka fyrir leikinn í dag og það hefur náðst því hann er einn 16 leikmanna í leikmannahópi Pick Szeged í dag. Janus Daði var á dögunum kynntur sem nýr leikmaður Barcelona og gengur í raðir spænska liðsins í sumar eftir tveggja ára dvöl í Ungverjalandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.