Einbeittur vilji að gera eins vel og hægt er fyrir kvenna handboltann
Sævar Jónasson

,,Heiður að verða fyrir valinu á meðal frábærra þjálfara," sagði Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV sem var á dögunum valinn þjálfari ársins í Olís-deild kvenna að mati Handkastsins.

LIÐ TÍMABILSINS Í OLÍS DEILD KVENNA

Magnús tók við ÍBV fyrir tímabilið eftir að hafa stýrt karlaliðinu undanfarin ár. ÍBV var í mikilli fallbaráttu á síðustu leiktíð en náðu töluvert betri árangri á þessu tímabili og endaði í 2.sæti Olís-deildar kvenna.

Samvinna þjálfara í deildinni

,,Við erum gríðarlega ánægð með árangurinn í vetur og 2.sætið er fyrirfram framar vonum en stelpurnar hafa komið okkur á óvart. Þær hafa lagt á sig mikla vinnu og þær eiga heiðurinn skilið. Þjálfarateymið er mjög stolt af stúlkunum, keppnin hefur verið jöfn þó svo að niðurstaðan sé afgerandi," sagði Magnús sem segir tímabilið hafa verið skemmtilegt að mörgu leiti.

,,Margar frábærar viðureignir átt sér stað og margt sem hefur þurft að huga að. Niðurstaðan alltaf sú sama, stelpurnar hafa lagt á sig gríðarlega mikla vinnu og þær eiga allt hrós skilið fyrir árangur vetrarins til þessa. Það hefur komið mér mest á óvart hversu “coachable” stelpurnar voru, þeim langaði mikið að læra nýja hluti, voru tilbúnar að leggja á sig vinnuna og er að uppskera. Samvinna þjálfara í deildinni hefur einnig verið gott og samtal milli okkar verið “virkt”, það er einbeittur vilji að gera eins vel og hægt er fyrir kvenna handboltann," sagði Magnús meðal annars í samtali við Handkastið.

Hann segir að markmiðið fyrir tímabilið hafi verið að enda í topp fjórum.

,,Það var alls ekki sjálfsagður hlutur, en einbeiting og liðsheild hefur skilað okkur á þann stað sem við erum á í dag. Úrslitakeppnin er svo bara nýtt mót útaf fyrir sig og það er tilhlökkun í hópnum að hefja þá vegferð. Vonandi sjáum við sem flesta á okkar heimaleikjum og gerum stemminguna eftirminnilega," sagði Magnús en ÍBV mætir Haukum í undanúrslitaeinvíginu sem hefst 15.apríl næstkomandi.

Til í að prófa 10 liða efstu deild

Mikil umræða hefur verið innan handboltahreyfingarinnar að undanförnu hvort fjölga eigi í Olís-deild kvenna í 10 lið en einungis átta lið eru í Olís-deild kvenna. Magnús segist vera hlynntur því að fjölga í deildinni um tvö lið.

,,Það eru tækifæri í að þora að breyta til, allar breytingar eru gerðar með hagsmuni íþróttarinnar að leiðarljósi. Ég væri til í að prófa 10 liða deild. Við vitum hvað við höfum í dag, það væri gaman að prófa aðra nálgun," sagði Magnús að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top