
Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu þegar Pick Szeged tók á móti Kielce og Sporting tók á móti Wisla Plock. Pick Szeged vann góðan sigur á Kielce í fyrri leik liðanna. Janus Daði Smárason var mættur aftur til leiks eftir meiðsli og skoraði 3 mörk. Lazar Kukic var markahæstur fyrir Szeged með 6 mörk og Piotr Adam Jarosiewicz var markahæstur fyrir Kielce með 6 mörk. Sporting vann fjögurra marka sigur á Wisla Plock í fyrri leik liðanna. Orri Freyr Þorkelsson átti góðan leik fyrir Sporting og skoraði 6 mörk. Fransisco Costa var markahæstur fyrir Sporting með 10 mörk og Melvyn Richardsson og Przemyslaw Krajewski skoruðu fimm mörk hvor fyrir Wisla Plock. Sporting - Wisla Plock 33-29 (19-12) Pick Szeged - Kielce 26-23 (11-11)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.