Trúir ekki öðru en að fólk horfi á þetta sem hag handboltans
Eyjólfur Garðarsson

Það var ekki sama spenna í undanúrslitaeinvígjunum í umspilinu um laust sæti í Olís-deild kvenna eins og er karlamegin þar sem Hörður vann meðal annar Gróttu í tvíframlengdum leik og framundan er oddaleikur Stjörnunnar og Fjölnis í hinu einvíginu.

Hjá konunum vann Stjarnan tvo sannfærandi sigra gegn FH, samtals með 23 mörkum og Grótta gerði slíkt hið sama og vann Víking með 19 mörkum samtals. Mikil umræða hefur verið um að nú sé kominn tími til að fjölga í Olís-deild kvenna í 10 lið strax á næsta tímabili. Þessi úrslit hjálpa ekki þeim aðilum sem eru mótfallnir þeirri hugmynd.

Rætt var um umspilið og fjölgunina í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Enn eitt vatnið á myllu þeirra sem vilja fjölga í Olís-deild kvenna var þessi undanúrslitaeinvígi í umspilinu í Olís-deild kvenna. Þar sást bersýnilega munurinn á  liðunum. Það eru einhverjir sem eru að tala fyrir einni deild en við sjáum það að sjöunda besta liðið í Olís-deild kvenna vinnur FH í tveimur leikjum með 23 mörkum samtals og annað besta liðið í Grill66-deildinni vann  þriðja besta liðið í Grillinu með 19 markamun í tveimur leikjum,” sagði Arnar Daði Arnarsson og spurði gest þáttarins, Einar Inga hvort hann væri ekki sammála því að þetta væri vatn á myllu þeirra sem vilja fjölga í 10 liða úrvalsdeild?

,,Það er allavegana mjög mikill munur á þessu efstu tveimur liðum í Grill-inu og restinni. Ég vona að Grótta gefi Stjörnunni alvöru einvígi í úrslitunum. Þessi umræða um 10 liða úrvalsdeild er óþægileg fyrir bæði liðin sem voru að detta út núna og hafðu engan áhuga að fara upp og gáfu kannski minna í þetta en ekki. En það er rétt sem þú segir, það er alltof mikill munur á efstu tveimur sætunum í Grillinu og restinni af liðunum. Það eru þessi helstu rök fyrir því að fara í 10 liða úrvalsdeild." 

Áróðurssímtöl

Arnar Daði bætti við að hann væri farinn að heyra af því að "stóru" liðin á landinu væri farin að hringja áróðurssímtöl í minni félög og reyna hafa áhrif á að þessi breyting fari ekki í gegn.

,,Maður er farinn að heyra að stóru liðin séu farin að hringja áróðurssímtöl hingað og þangað og reyna hafa áhrif á þetta allt saman. Það þarf vissulega 66% atkvæði til að breyta þessu og maður er farinn að heyra að stóru félögin séu farin að óttast það að þau geti ekki kroppað í fleiri leikmenn úr Grill66-deildunum.”

,,Það er ekkert ólíklegt að lið eins og Fram sem hafa ekki verið opin fyrir því að lána leikmenn gætu verið að lána leikmenn fyrir atkvæði," skaut Einar Ingi inn.

,,Við trúum ekki öðru en að fólk horfi á þetta sem hag handboltans að fjölga í 10 liða deild. Það er númer 1,2 og 3 að handboltahreyfingin standi saman og sjái að það þarf að breyta einhverju. Ef einhver ákvörðun verður fyrir valinu þá verður handboltahreyfingin að kyngja stoltinu þó að það henti kannski ekki stærsta liðinu á landinu,” bætti Arnar Daði við.

Stjarnan og Grótta mætast í úrslitum umspilsins en það einvígi hefst ekki fyrr en 15.apríl.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top