Bjarki Már sneri aftur eftir meiðsli
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Bjarki Már Elísson lék um helgina sinn fyrsta leik með One Veszprém eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann meiddist á sköflungi í lok febrúar og hafði því fyrir frá keppni í rúmlega fimm vikur.

Bjarki Már gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í tólf marka sigri One Veszprém gegn Balatonfüredi KSE 32-20 í ungversku úrvalsdeildinni.

Þetta var 21. sigur One Veszprém í deildinni í jafnmörgum viðureignum. Hefur liðið fimm stiga forskot á toppi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir. Veszprém er einnig í eldlínunni í Meistaradeildinni og stendur vel að vígi fyrir seinni leikinn í einvígi sínu gegn PSG.

Veszprém vann fyrri leik liðanna á heimavelli í síðustu umferð 32-24 en liðin mætast í París í kvöld klukkan 18:45. Komist Veszprém áfram mæta þeir Fuchse Berlín í 8-liða úrslitum keppninnar.

Bjarki Már sem verður 36 ára í maí rennur út af samningi hjá Veszprém í sumar og er framtíð hans óljós.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top