
Hilmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn afreksþjálfari kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss en hann hefur stýrt kvennaliði HK undanfarin ár og kom liðinu upp í Olís-deildina eftir sigur í Grill66-deildinni á þessu tímabili. Í tilkynningunni frá Selfossi segir að Hilmar komi inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna með Eyþóri Lárussyni auk þess að leiða þjálfarateymi 3. og 4. flokks kvenna. ,,Hilmar hefur þjálfað handknattleik í tæp þrjátíu ár og býr yfir mikilli og fjölbreyttri reynslu. Hann hefur þjálfað bæði meistaraflokka og yngri flokka, auk þess sem hann hefur komið að þjálfun unglingalandsliða Íslands. Hilmar kemur til okkar frá HK, þar sem hann stýrði meistaraflokki kvenna upp í Olísdeildina á nýliðnu tímabili. Þar áður starfaði hann sem þjálfari í Noregi í sex ár," segir í tilkynningunni frá félaginu. Kvennalið Selfoss féll úr Olís-deildinni eftir harða fallbaráttu við Stjörnuna og leikur því í Grill66-deildinni á næsta ári. ,,Mikil tilhlökkun er hjá handknattleiksdeildinni með komu Hilmars og væntum við mikils af hans störfum," sagði ennfremur í tilkynningunni. Á meðfylgjandi mynd eru Eyþór Lárusson þjálfari meistaraflokks kvenna, Hilmar Guðlaugsson nýráðinn afreksþjálfari, Hjörtur Leó Guðjónsson stjórn handknattleiksdeildar og Bertha María Arnarsdóttir stjórn handknattleiksdeildar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.