
Susan Barinas Gamboa hefur ákveðið að framlengja samningi sínum við Aftureldingu til tveggja ára. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum fyrir helgi. Susan kom til félagsins fyrir sex árum síðan og ljóst er að hún verður áfram í Mosfellsbænum næstu tvö tímabil í það minnsta. ,,Hún hefur verið gríðarlega mikilvæg fyrir bæði varnar og sóknarleik liðsins en Susan getur leyst af nokkrar stöður á vellinum," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu og þar er henni lýst sem miklum leiðtoga. Susan skoraði 81 mark í 19 leikjum á tímabilinu sem var að klárast en Afturelding endaði í 7.sæti Grill66-deildarinnar með 13 stig, jafn mörg stig og neðsta lið deildarinnar, Fram 2. ,,Við erum stolt að því að Susan hafi ákveðið að framlengja samninginn sinn við félagið og vilji taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.