Þrælefnilegur hornamaður framlengir við Fram
Fram

Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir til tveggja ára. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum fyrir helgi.

,,Margrét er ein af okkar uppöldu stelpum sem hefur spilað mikið með Fram 2 í Grill66-deildinni í vetur, ásamt því að koma við sögu í nokkrum leikjum hjá okkur í Olís," segir í tilkynningunni frá Fram en þar segir jafnframt að Margrét sé þrælefnilegur vinstri hornamaður sem félagið hlakkar mikið til að fylgjast með vaxa á næstu misserum.

,,Margrét er í mikilli Fram-fjölskyldu og foreldrar hennar til að mynda stórtæk í starfinu hjá okkur í FRAM, þvert á íþróttir. Virkilega ánægjulegt að halda í Margréti áfram næstu tvö tímabil."

Margrét skoraði 22 mörk fyrir Fram 2 í 18 leikjum í Grill66-deildinni í vetur en Fram 2 endaði í neðsta sæti deildarinnar með 13 stig, jafn mörg stig og Afturelding.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top