
Litháíski markvörðurinn Vilius Rasimas sem lék lengi vel hér á Íslandi bæði með Selfossi og Haukum hefur verið kosinn nýr formaður litháíska handknattleikssambandsins. Hefur Rasmias verið kjörinn formaður sambandsins til næstu fjögurra ára. Rasimas lék með Haukum á síðustu leiktíð en þurfti að hætta handknattleiksiðkun í sumar vegna erfiðra meiðsla og flutti í kjölfarið til sín heima í Litháen. Sagt er í fréttum í Litháen að framboð Rasimas hafi verið samþykkt einróma. ,,Margra ára reynsla mín af leik með félagsliðum erlendis, þar sem handbolti er mjög vinsæll og eftir að hafa spilað með landsliði Litháens á ferðalögum um heiminn, hefur það gert mér það kleift að sjá hversu sterkt handboltasamfélag við getum byggt upp. Ég tel að við höfum einnig möguleika á að ná því hér í Litháen,“ sagði Vilius Rasimas sem lék 82 landsleiki á ferlinum og spilaði fyrir í Póllandi, Frakklandi, Þýskalandi og á Íslandi á sínum leikmannaferli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.