
Sjötta daginn í röð tilkynnti Fram um framlengingu á samningi hjá leikmanni innan þeirra raða en í gær tilkynnti félagið að vinstri hornamaðurinn, Þóra Lind Guðmundsdóttir hafi framlengt samningi sínum til tveggja ára. Í tilkynningunni frá félaginu kemur fram að félagið sé hvergi nærri búið að tilkynna framlengingarnar sem hafa átt sér stað undanfarna daga. Við í Handkastinu bíðum spennt eftir fleiri tilkynningum frá félaginu. ,,Þóra er vinstri hornamaður sem hefur leikið hjá okkur á þremur vígstöðum í vetur. Hún er enn í 3. flokki en hefur leikið bæði með Grillliðinu okkar sem og Olís deildar liðinu í vetur. Þóra kemur úr mikilli Framfjölskyldu en foreldrar hennar hafa verið virk hjá okkur í starfinu sem og bræður hennar tveir," segir í tilkynningunni frá Fram. ,,Við erum lánsöm að njóta krafta Þóru áfram og hlökkum til að fylgjast með framþróun hennar á næstu tímabilum," sagði ennfremur í tilkynningunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.