Þrjár framlengja við Selfoss
Sævar Jónasson

Þær Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa allar framlengt samninga sína til næstu þriggja ára. Þær Adela og Hulda Hrönn voru í stóru hlutverki hjá Selfossi í Olís-deild kvenna í vetur er liðið féll úr deildinni.

Adela Eyrún sem er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra hlutverk með hverju árinu. Adela hefur einnig verið í U-20 ára landsliði Íslands í síðustu verkefnum. Það sama er að segja um Huldu Hrönn sem er jafn gömul og Adela og hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.

Sylvía er leikstjórnandi á sautjánda ári sem hefur verið að vinna sig inn í hlutverk í Selfoss liðinu í vetur.

,,Gríðarleg ánægja er innan deildarinnar að þessar þrjár öflugu stúlkur hafi ákveðið að taka slaginn með okkur næstu árin. Það verður mjög gaman að fylgjast með framþróun þeirra á næstunni í vínrauðu Selfoss treyjunni," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top