Haukar með sterkan útisigur í Vestmannaeyjum
Sævar Jónasson

ÍBV tók á móti Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslita einvígi í Olís deild kvenna í Vestmannaeyjum í kvöld.

Liðin lentu í öðru og þriðja sæti í deildarkeppninni svo það mátti búast við hörkuleik.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust þá að hafa forystu. ÍBV náði tveggja marka forystu rétt fyrir hálfleik en Haukar náðu að minnka muninn í 13-12 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Í síðari hálfleik var sama uppá teningnum, heimakonur skrefinu á undan en Haukar aldrei langt undan. Það dró svo til tíðinda þegar fjórar mínútur voru eftir en þá tóku Haukar yfirhöndina og skoruðu þrjú mörk í röð á einni mínútu og breyttu stöðunni í 24-28.

ÍBV náði ekki að vinna forskot þeirra til baka og niðurstaðan var því þriggja marka sigur gestanna úr Hafnarfirði, 26-29. Haukar eru því komnar í 1-0 í einvíginu og eiga heimaleik gegn ÍBV um helgina.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst hjá ÍBV í kvöld með 9 mörk en hjá Haukum var Embla Steindórsdóttir markahæst með 7 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top