Er þetta faglegt eða er þetta fíflagangur?
Egill Bjarni Friðjónsson

Undanúrslitin í úrslitakeppni kvenna hefst í kvöld með tveimur leikjum. Leikirnir verða báðir sýndir í beinni í Handboltapassanum en sá fyrri, ÍBV - Haukar hefst klukkan 18:00 í Vestmannaeyjum og á Hlíðarenda mætast Valur og Fram klukkan 19:30.

Í uppgjörsþætti Handkastsins í gærkvöldi var rætt um lítinn undirbúning liðanna fyrir leikina í kvöld en íslenska landsliðið lék á sunnudag lokaleik sinn í undankeppni Evrópumótsins gegn Portúgal. Þremur dögum síðar hefst síðan undanúrslita einvígin.

,,Hitamál Everdure grill þessa vikuna er að félagsliðin sem eru að fara leika í undanúrslitum úrslitakeppninnar í kvenna fengu eina æfingu með landsliðsstelpunum fyrir einvígin. Landsliðið var að spila á sunnudaginn, þær fá sennilega frí á mánudeginum síðan er bara léttæfing í gær og síðan leikur í kvöld í undanúrslitunum. Er þetta faglegt?” velti Stymmi klippari fyrir sér.

,,Er þetta fíflagangur?” spurði Sigurjón Friðbjörn Björnsson til baka.

,,Ég veit alveg að mótanefnd HSÍ er ekki að leika sér að þessu. Landsleikurinn átti upphaflega að vera á laugardegi síðan færðist hann yfir á sunnudag," bætti Stymmi við og í kjölfarið tók við umræða um málið þar sem menn veltu fyrir sér ýmsum hugmyndum svo hægt hafi verið að komast hjá því að bestu lið landsins myndu einungis fá 1-2 daga með sínu landsliðskonum fyrir undanúrslitaeinvígin.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top