Vera gengur í raðir Aftureldingar
Afturelding

Vinstri hornamaðurinn, Vera Pálsdóttir hefur ákveðið að ganga í raðir Aftureldingar í Grill66-deildinni frá nágrönnum sínum í Fjölni.

Vera er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Aftureldingar á dögunum en áður hefur félagið tilkynnt um komu Andreu Þorkelsdóttur og þá gekk Mattý Rós Birgisdóttir í raðir félagsins á dögunum.

Vera er reynslumikill hornamaður sem er uppalinn í Árbænum en hefur auk Fylkis leikið með Gróttu og Fjölni á ferlinum. Hún skoraði 44 mörk í 21 leik á síðasta tímabili með Fjölni í Grill66-deildinni en það var hennar fyrsta tímabil aftur eftir nokkura ára pásu.

,,Við erum virkilega ánægð með að Vera hafi ákveðið að ganga til liðs við Aftureldingu og ætli að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Handkastið greindi frá því á dögunum að Guðmundur Helgi Pálsson myndi taka við liði Aftureldingar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top