Stjarnan og Grótta mætast í kvöld í fyrsta leik í úrslitaeinvígi umspils kvenna um Olís sæti. Fyrsti leikur í einvíginu er í kvöld kl. 19:00 í Heklu höllinni í Garðabæ. Ljóst er að það er afar áhugavert einvígi framundan. Grótta lenti í 2. sæti í Grill 66 deildinni í vetur á meðan Stjarnan lenti í 7. sæti í Olís deildinni. Sigra þarf 3 leiki til að tryggja sér Olís deildar sæti. Við heyrðum í Hönnu G. Stefánsdóttir aðalþjálfara Stjörnunnar og fengum viðbrögð hvernig henni litist á einvígið sem framundan er. "Þetta verður hörku einvígi. Grótta er með mjög spennandi lið, mikið stemmings lið og fer langt á því ásamt því að vera góðar maður á mann. Við áttum góðar rimmur síðastliðin ár og skipst á sigrum. Það er ekkert gefins í þessu og við þurfum að mæta með 100% fókus frá fyrstu mínútu, fastar fyrir varnarlega og fara vel með boltann sóknarlega. Ég vil hvetja alla að mæta á þetta einvígi og búa til geðveika stemmningu því það er ekkert skemmtilegra en að spila fyrir áttunda manninn" sagði Hanna G. Stefánsdóttir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.