Stjarnan tók á móti Gróttu í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu í umspilinu um laust sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Grótta byrjaði leikinn af miklum krafti og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Leikurinn var annars jafn stóran hluta hálfleiksins en Grótta leiddi með þremur mörkum í hálfleik 9-12. Síðari hálfleikur var mikil barátta en Stjarnan var búið að jafna metin strax í stöðunni 14-14. Stjarnan komst hinsvegar aldrei yfir í seinni hálfleik og var Grótta yfirleitt með eins til tveggja marka forystu út leikinn og uppskar að lokum tveggja marka sigur 21-23 en mikil spenna var undir lok leiks þar sem bæði lið skiptust á að skora. Einu marki munaði þegar mínúta var eftir af leiknum og gulltryggði Elísabet Ása Einarsdóttir sigur Gróttu með marki sjö sekúndum fyrir leikslok. Liðin mætast öðru sinni á Seltjarnarnesi á sunnudaginn næstkomandi. Hjá Stjörnunni var Vigdís Arna Hjartardóttir markahæst með fimm mörk, Eva Björk Davíðsdóttir skoraði fjögur og Aníta Björk Valgeirsdóttir skoraði þrjú, öll af vítalínunni. Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir varði 10 skot, 32% markvarsla og Margrét Einarsdóttir varði fjögur skot með 66% markvörslu, þar af þrjú víti.
Ída Margrét Stefánsdóttir fór á kostum í liði Gróttu og skoraði 10 mörk en Andrea Gunnlaugsdóttir var með 17 varin skot í marki Gróttu, 46% markvörslu. Elísabet Ása Einarsdóttir og Katrín Scheving skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.