Frábær frammistaða Elmars dugði ekki til
Nordhorn Lingen

Heil umferð fór fram í þýsku B-deildinni í gærkvöldi þegar 28. umferð deildarinnar fór fram.

Þrátt fyrir frábæra frammistöðu Elmars Erlingssonar fyrir Nordhorn-Lingen dugði það ekki liðinu til að vinna 2000 Coburg á útivelli. Elmar var markahæstur í liði Nordhorn-Lingen með átta mörk úr átta skotum og þá gaf hann sjö stoðsendingar.

Coburg vann leikinn með fjórum mörkum 36-32 eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik 20-21. Nordhorn-Lingen er í 6. sæti deildarinnar með 34 stig eftir tapið í gær en sex umferðir eru eftir af deildinni. Coburg er með 30 stig í 8.sæti deildarinnar.

Nordhorn hefur einungis unnið tvö af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni.

Tjörvi Týr Gíslason var ekki í leikmannahópi HC Oppenweiler/Backnang sem tapaði gegn Elbflorenz með fjórtán marka mun 42-28 en Elbflorenz var 21-12 yfir í hálfleik. Elbflorenz er í 3.sæti deildarinnar með 42 stig, fjórum stigum á eftir Balingen sem er í 2.sæti deildarinnar.

Tjörvi Týr og félagar eru á botni deildarinnar með tvö stig og ekkert nema fall virðist bíða þeirra.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top