Það verður Íslendingaslagur í bikarúrslitaleiknum í Portúgal en það varð ljóst eftir að seinni leikir undanúrslitanna fóru fram í dag. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk þegar Sporting vann fjórtán marka sigur gegn Maritimo í seinni leik liðanna í dag. Sporting vann leikinn 42-28 eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna með þremur mörkum á útivelli. Sporting vann einvígið samanlagt 82-56. Staðan í hálfleik í leiknum í dag var 21-15 Sporting í vil. Í seinni leiknum mættust Benfica og Águas Santas en Águas Santas vann fyrri leik liðanna 31-28. Benfica voru hinsvegar töluvert sterkari aðilinn í leiknum í dag og voru fimm mörkum yfir í hálfleik 14-9. Benfica héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og unnu að lokum fjórtán marka sigur 36-22 og samanlagt 64-53. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica í sigrinum í dag en Reinier Dranguet var markahæstur í liði Benfica með átta mörk og Miguel Naranjo skoraði sex.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.