Valur sópaði Fram í sumarfrí
Egill Bjarni Friðjónsson

Anton Rúnarsson og hans konur voru með sópinn á lofti í Valsheimilinu í kvöld þegar Valur vann fjögurra marka sigur á Fram 31-27 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Valur hefur því tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu eftir 3-0 sigur í einvíginu.

Lovísa Thompson og Lilja Ágústsdóttir voru markahæstar í liði Vals með fimm mörk og Guðrún Hekla Traustadóttir og Elísa Elíasdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Hjá Fram var Hulda Dagsdóttir allt í öllu í sóknarleik liðsins með níu mörk en fjórir leikmenn skoruðu þrjú mörk hver.

Valur náði snemma fjögurra marka forystu í leiknum í stöðunni 10-6 og var fimm mörkum yfir í hálfleik 15-10. Valur skoraði tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik og gerði gott sem útum leikinn strax í seinni hálfleik. Valur náði mest átta marka forystu í seinni hálfleiknum og voru síðustu mínúturnar einungis formsatriði fyrir Deildar- og bikarmeistara Vals að klára.

Nú þurfa þær að bíða og sjá hvort þær mæti Haukum eða ÍBV en ÍBV leiðir í því einvígi 2-1.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top