ÍBV hafði sigur eftir tvíframlengdan leik
Sævar Jónasson)

ÍBV tók á móti Haukum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Staðan í einvíginu var 1-1 og höfðu báðir leikirnir unnist á útivelli.

ÍBV byrjaði leikinn mun betur í kvöld og náðu fljótlega fjögurra marka forystu. Haukar voru þó aldrei langt undan og skoruðu liðin mikið í fyrri hálfleiknum. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 18-16 ÍBV í vil og var Sandra Erlingsdóttir allt í öllu hjá heimakonum.

Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks en eftir um korters leik í síðari hálfleik voru Haukar búnar að jafna leikinn í 24-24. ÍBV náðu þó tveggja marka forystu aftur og þegar 7 mínútur voru eftir af leiknum. Haukar voru þó fljótar að jafna leikinn aftur í 27-27. Það var gífurlega spenna á lokamínútum leiksins og komust Haukar marki yfir þegar 7 sekúndur voru eftir. Eyjakonur tóku leikhlé og enn og aftur var Kristrún Ósk hetja þeirra þegar hún jafnaði leikinn og tryggði ÍBV framlengingu.

Haukar höfðu frumkvæðið í framlengingunni og voru alltaf skrefi á undan í markaskorun en ÍBV náði alltaf að svara. Haukar fengu tækifæri til að komast yfir þegar 1 mínúta var eftir en töpuðu boltanum og Birna Berg náði ekki að skora á lokasekúndum framlenginnar og því þurfti að grípa til annarrar.

Í þeirri framlengingu voru það ÍBV sem voru með frumkvæðið en líkt og í fyrri voru Haukar alltaf fljótar að svara. Ásdís Halla kom ÍBV í 38-37 þegar 1 mínúta var eftir. Haukar freistuðu þess að jafna en Ólöf Maren markmaður ÍBV varði frábærlega í horninu frá Sonju Lind og eins marks sigur ÍBV staðreynd.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst ÍBV með 14 mörk í kvöld og Embla Steindórsdóttir var allt í öllu hjá Haukum með 13 mörk.

Staðan er því orðin 2-1 fyrir ÍBV og geta þær komist í úrslit með sigri á Ásvöllum á laugardaginn.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top