
Lokaumferðin í austurrísku úrvalsdeildinni fór fram í gær þar sem Íslendingalið Alpla Hard var í eldlínunni. Tumi Steinn Rúnarsson átti stórleik þegar Alpla Hard lagði Füchse 33-31. Tumi skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar í leiknum. Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað í leiknum en þjálfari Alpla Hard er Hannes Jón Jónsson. Gera má fastlega ráð fyrir því að enginn Íslendingur verður í herbúðum Alpla Hard á næstu leiktíð. Alpla Hard hafnaði í 2. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Jags sem tryggði sér deildarmeistaratitilinn. Fram undan er úrslitakeppni þar sem Alpla Hard mætir Aon Fivers í átta liða úrslitum. Alpla Hard tapaði í úrslitaeinvíginu á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.