Sóldís Rós framlengir við Fram
Fram

Sóldís Rós Ragnarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við sitt uppeldisfélag, Fram. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun.

,,Það gleður okkur að segja frá því að Sóldís Rós Ragnarsdóttir er búin að framlengja samninginn sinn. Sóldís hefur aukið spiltímann sinn jafnt og þétt síðustu tímabil og er komin í algert lykilhlutverk hjá okkur í vörninni í meistaraflokki kvenna," segir í tilkynningunni frá Fram.

Í tilkynningunni segir ennfremur: ,,Sóldís er ekki bara varnarmaður, því hún er skothörð, öflug skytta í þokkabót og okkur hlakkar mikið til að fylgjast með áframhaldandi þróun Sóldísar sem leikmanns. Það er mikið gleðiefni að við séum að halda í okkar stelpur, sem hafa alist upp hjá okkur og eru nú komnar upp í meistaraflokk."

Sóldís hefur skorað 40 mörk fyrir Fram í vetur en liðið er í miðri úrslitakeppni 0-2 undir gegn Val í undanúrslitaeinvíginu en þriðji leikurinn fer fram á miðvikudagskvöldið á Hlíðarenda.

Fram hefur keppst um að tilkynna framlengingar á samningum við sína leikmenn auk þess sem tveir nýir leikmenn hafa gengið í raðir félagsins á dögunum. Þær Hanna Guðrún Hauksdóttir frá Stjörnunni og Lena Margrét Valdimarsdóttir eftir eins árs veru hjá Skara í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top