Hefur ÍR fundið arftaka Grétars Áka?
Sævar Jónasson

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur ÍR fundið arftaka Grétars Áka Andersen sem hætti með kvennalið ÍR á dögunum.

Arftaki Grétars Áka samkvæmt heimildum Handkastsins verður Guðmundur Helgi Pálsson sem var á dögunum sagður verða næsti þjálfari kvennaliðs Aftureldingar.

Handkastið hefur eftir heimildum að Guðmundur Helgi hafi tilkynnt Aftureldingu í dag að hann myndi ekki taka að sér starfi sem þjálfari kvennaliðs Aftureldingar þrátt fyrir að hann hafi verið byrjaður að starfa bakvið tjöldin hjá Aftureldingu án þess þó að vera búinn að skrifa undir þjálfara samning við félagið.

Guðmundur Helgi Pálsson þjálfaði síðast kvennalið Aftureldingar frá árinu 2019-2024 en hann hætti með liðið af persónulegum ástæðum eftir tímabilið 2023/2024.

Áður þjálfaði hann karlalið Fram og þá hefur hann einnig þjálfað hjá ÍR en hann var til að mynda aðstoðarþjálfari Bjarka Sigurðssonar með karlalið ÍR á sínum tíma.

Raggi Óla

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top