Fyrsta tap Guðjóns Vals í 123 daga – Haukur markahæstur
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í dag þar sem þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni. Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach þurftu að sætta sig við fyrsta tap liðsins í 123 daga þegar liðin tapaði gegn þýsku meisturunum í Füchse Berlin.

Gummersbach hafði unnið ellefu leiki í röð í deildinni fram að leiknum í dag sem tapaðist með tveimur mörkum 28-26 en leikurinn fór fram í Berlín.

Berlínarliðið var einu marki yfir í hálfleik 13-12 en staðan var jöfn 25-25 þegar skammt var eftir af leiknum. Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach en Teitur Örn Einarsson skoraði ekki.  Daninn Mathias Gidsel skoraði ellefu mörk fyrir Füchse Berlin og var lang markahæstur á vellinum.

Í hinum leik dagsins átti Haukur Þrastarson enn einn stórleikinn í naumu tapi Rhein-Neckar Löwen fyrir Göppingen 32-30. Haukur skoraði ellefu mörk þar af fjögur síðustu mörk liðsins og þá gaf hann átta stoðsendingar.

Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Göppingen í leiknum. Göppingen er í 9. sæti deildarinnar með 28 stig en Löwen er sæti ofar með 31 stig.

Gummersbach er í 4. sæti deildarinnar með 43 stig, þremur stigum á eftir Füchse sem er í öðru sæti deildarinnar. Magdeburg er á toppi deildarinnar með 52 stig þegar aðeins fimm leikir eru eftir. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top