Í dag mættust Grótta og Stjarnan í 4. leik úrslitaeinvígis í umspili um Olís deildar sæti. Leikið var í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi. Fyrir leikinn var staðan 2-1 fyrir Gróttu og gátu heimastúlkur tryggt Olís deildar sæti með sigri. Grótta fékk fljúgandi start í leiknum og komst strax í 3-0. Stjörnustúlkur voru fljótar að jafna metin. Fyrstu 20 mínútur leiksins eða svo voru mjög jafnar og spennandi. Stjarnan átti svo frábæran kafla þar sem þær fara úr 8-8 yfir í 8-12. Gróttu stúlkur brugðust fljótt við og náðu að minnka muninn. 13-14 voru hálfleikstölur í tiltölulega jöfnum og spennandi fyrri hálfleik. Fyrstu 5 mínútur seinni hálfleiks voru jafnar og var staðan 18-18. En þá hrundi leikur Gróttu eins og spilaborg. Næstu 10 mínútur leiksins skoruðu þær ekki mark á meðan Stjarnan skoraði 12 mörk. Já, þið lásuð rétt. 12-0 kafli fyrir Stjörnunni á 10 mínútum. Ótrúlegar sveiflur. Þarna var leikurinn bara búinn í stöðunni 18-30 fyrir Stjörnunni. Lokatölur leiksins urðu síðan 24-36 og Stjarnan búið að jafna metin í 2-2 í einvíginu. Eftir 4 leiki hefur Stjarnan skorað 109 mörk og Grótta 104 mörk. Því þarf að grípa til oddaleiks sem verður næstkomandi miðvikudagskvöld í Heklu höllinni í Garðabæ. Þvílíkt einvígi sem þetta er búið að vera. Endalausar sveiflur og sviptingar í báðar áttir að annað eins hefur ekki sést lengi. Eflaust afar sjaldgæft að í 4 leikja einvígi hafi allir leikirnir unnist á útivelli. Algjör veisla fyrir handboltaunnendur og hlutlausa áhorfendur að það verði oddaleikur og leikið til þrautar. Handkastið hvetur alla til að fjölmenna á oddaleikinn á miðvikudaginn. Stelpurnar í báðum liðum eiga það skilið. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.