
Elmar Erlingsson skoraði eitt mark og gaf sex stoðsendingar í Íslendingaslag í þýsku B-deildinni í gær þegar Nordhorn-Lingen vann neðsta lið deildarinnar, HC Oppenweiler/Backnang á útivelli 37-32. Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark fyrir Oppenweiler/Backnang í leiknum en Elmar og félagar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik 14-16. Tjörvi og félagar jöfnuðu metin 16-16 í upphafi seinni hálfleiks en þá komu fjögur mörk í röð frá Nordhorn og eftir það höfðu þeir forystu út allan leikinn. Nordhorn er í 6. sæti deildarinnar með 36 stig þegar fimm umferðir eru eftir. HC Oppenweiler/Backnang er hinsvegar á botni deildarinnar með tvö stig og þegar fallið þegar fimm umferðir eru eftir. Gera má ráð fyrir því að Tjörvi Týr Gíslason finni sér nýtt félag í sumar eftir eins árs veru hjá HC Oppenweiler/Backnang en hann lék með HC Bergischer á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.