Elvar Ásgeirsson var valinn leikmaður ársins hjá danska úrvalsdeildarfélaginu, Ribe Esbjerg en tímabilinu lauk hjá félaginu í gær er liðið vann öruggan ellefu marka sigur á Nordsjælland. Elvar skoraði fjögur mörk í leiknum. Eftir deildarkeppnina endaði liðið í 9.sæti, tveimur stigum frá sæti í úrslitakeppninni. Í umspilinu um öruggt sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð vann liðið þrjá af fjórum leikjum sínum og endaði efst í riðlinum. Elvar var markahæsti leikmaður Ribe Esbjerg á tímabilinu með 118 mörk og þá var hann einnig stoðsendingahæstur í liðinu með 93 stoðsendingar. Elvar var að ljúka sínu fjórða tímabili með danska félaginu en hann framlengdi samningi sínum fyrir tímabilið við félagið og verður að öllu óbreyttu áfram hjá liðinu á næstu leiktíð. Elvar var kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á EM í janúar eftir að Elvar Örn Jónsson meiddist en fékk ekki tækifæri á mótinu. Gera má fastlega ráð fyrir því að Elvar verði valinn í landsliðshóp Íslands sem fer til Egyptalands í maí en Snorri Steinn tilkynnir landsliðshópinn á morgun. Rætt var um komandi landsliðshóp í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem nafn Elvars var til umræðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.