Situr í mér að vera ekki kvödd betur af ÍBV
Sigurður Ástgeirsson

Sunna Jónsdóttir hefur lagt handboltaskóna á hilluna líkt og Handkastið greindi frá á dögunum eftir langan og farsælan feril þar sem hún lék bæði hér á landi og erlendis.

Sunna var meðal annars fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins og lék meðal annars með íslenska landsliðinu á stórmóti en landsliðsferill hennar lauk eftir Evrópumótið 2024.

Sunna lauk ferlinum með Fram í Olís-deild kvenna á þessu tímabili en hún er uppalin hjá Fylki í Árbænum.

Í bikarúrslit á fyrsta ári

,,Ég fór á mína fyrstu handboltaæfingu í Fylki 9 ára gömul hjá Ómari Erni Jónssyni, handknattleiksdómara í dag sem er einmitt líka að þjálfa son minn núna í Fylki. Ég tók strax ástfóstri við handbolta og hef alla tíð spilað af mikilli ástríðu og vinnusemi. Ég æfði og spilaði upp alla yngri flokkana í Fylki og minn árgangur varð hluti af fyrsta meistaraflokki félagsins í efstu deild," sagði Sunna aðspurð út í fyrstu árin í handboltanum.

,,Við fengum til okkar reynda útlendinga og Gurrý (Guðríður Guðjónsdóttir) var að þjálfa okkur. Þær voru allar eins og mömmur okkar og siðuðu okkur til innan og utan vallar," sagði Sunna og viðurkennir að það hafi alveg verið þörf á því að ala stelpurnar aðeins extra upp. Þrátt fyrir að vera með ungt og efnilegt lið með litla sem enga reynslu í efstu deild fór Fylkir í bikarúrslit á fyrsta ári félagsins í meistaraflokki.

,,Ég held að engin í félaginu hafi vitað hvað við vorum að fara út í. Ég skipti svo yfir í Fram og átti þar frábæra tíma. Þar kom ég inn í aðeins meira alvöru umhverfi, með ótrúlega metnaðarfullum og skemmtilegum hóp. Við urðum Íslandsmeistarar vorið 2013 og karlaliðið líka," rifjar Sunna upp tímabilið 2012/2013 og segir það tímabil hafi verið sturlað. Í kjölfarið fór hún út að spila, bæði í Svíþjóð og Noregi.

,,Mig langaði alltaf að prufa að fara út að spila handbolta ef tækifæri gæfist. Ég var bara í miðlungsliðum og í Svíþjóð vann ég með handboltanum. Það var meira pro í Noregi. En þetta var ótrúlega lærdómsríkur tími og ég bætti mig mikið sem handboltakona. Ég fékk mikið traust og spiltíma í liðunum sem ég var í og það var gaman að upplifa það að spila í öðrum deildum, kynnast öðrum kúltúr og nýju fólki ásamt því að læra nýtt tungumál. Það varð þó engin draumaendir á atvinnumennskunni minni. Liðið mitt, HK Halden, fór á hausinn, ég var í meiðslum og þurfti að fara í aðgerð og varð svo ólétt í kjölfarið."

Viðskilnaðurinn við ÍBV

Í kjölfarið samdi Sunna við ÍBV eftir að hafa átt sitt fyrsta barn, sumarið 2018.

,,Ég átti frábæran tíma í Vestmannaeyjum og í ÍBV. ÍBV getur boðið upp á þannig umgjörð og utanumhald fyrir íþróttafólk og unga iðkendur að maður getur verið 100% fókuseraður á að bæta sig og ná árangri. Mér finnst Vestmannaeyjar fallegasti staður landsins og samfélagið er duglegt, kraftmikið og samheldið. Það er fátt sem jafnast á við að spila fyrir ÍBV með næstum heilt samfélag sem stuðning, sérstaklega þegar vel gengur. Og að upplifa það sem manni dreymdi um, að sigla heim með bikar, eftir að hafa orðið Bikarmeistarar árið 2023 er ógleymanleg minning og algjört gæsahúðarmóment á ferlinum."

Eftir sjö tímabil hjá ÍBV var komið að leiðarlokum og Sunna flutti í bæinn af persónulegum ástæðum og lauk ferlinum með Fram í vetur.

,,Það situr þó aðeins í mér að vera ekki kvödd betur af ÍBV síðastliðið vor. Mér fannst ég alveg eiga það skilið. Ég upplifði þetta svona eins og vont sambandsslit. Ég vona að ÍBV taki sig á í þessu og sýni leikmönnum sem eru að hætta eða eru samningslausir og fá ekki áframhaldandi samning þá virðingu, kveðjur og þakkir sem þeir eiga skilið."

,,Ég var svona nokkurn vegin búin að gefa það út að ég ætlaði að draga saman seglin og ekki vera jafn "all in" og ég hef alltaf verið. Ég einfaldlega hafði ekki tíma í það, var orðin þreytt, verkjuð í líkamanum og átti erfitt andlega. Hinsvegar er ég ánægð með að hafa tekið þetta ár í Fram og ég er líka þakklát Fram fyrir að leyfa mér að vera í þessu á þeim forsendum sem ég var. Ég hef fengið mikinn stuðning frá félaginu og öllum innan félagsins. Fram gaf mér það tækifæri að ég kæmi inn í þetta til að aðstoða liðið, gefa af mér ásamt því að miðla reynslu og þekkingu. Ég veit ég er góð í því hlutverki og ég nýt mín vel í því. Ég fann gleðina í handboltanum aftur og fann einnig að ég átti ennþá inni smá orku og nokkrar mínútur á parketinu," sagði Sunna og bendir á að það sé ekki alveg ákjósanlegustu forsendurnar að geta ekki verið 100% með en þetta var það sem hún gat gefið.

,,Ég veit að ég hjálpaði liðinu fullt en ég held að þau átti sig ekki á hvað þau hafa hjálpað mér mikið. Handboltinn getur bara gefið manni svo ótrúlega mikið. Manni finnst þetta algjör klisja í gömlum handboltakempum þar til maður fer sjálfur að hugleiða að hætta og gera upp tímann. Ef maður er að ganga í gegnum erfiðleika þá er gott að geta farið í það sem maður þekkir sig best í, finna sjálfan sig í því sem manni líður vel, gleyma sér í mómentinu og vera eiginlega bara á sjálfstýringu. Handboltinn gerði akkúrat þetta fyrir mig í vetur og hefur gert áður."

Landsliðsferillinn eftirminnilegur

Sunna lék 99 landsleiki fyrir Ísland og skoraði í þeim leikjum 66 mörk. Hún lagði landsliðsskóna á hilluna í febrúar 2025 eftir 16 ár með landsliðinu. Hún segir að landsliðsferilinn sé stærsti og eftirminnilegasti kaflinn á hennar ferli.

,,Ég hef upplifað allskonar í landsliðinu. Að vera nýliði með stjörnur í augunum, að vera ung á stórmóti 2010, að fara í gegnum kynslóðaskipti og þjálfara breytingar. Ég hef tekið þátt í niðursveiflum og uppsveiflum, hef farið á stórmót sem ein af þeim reynslumeiri og sem fyrirliði, verið í stóru hlutverki, verið í litlu hlutverki og ekki verið valin í lokahóp og auðvitað farið í mörg mislöng ferðalög. Aldrei hvarflaði að mér að gefa ekki kost á mér eða taka ekki 110 prósent þátt þegar ég fékk tækifæri til."

,,Heiðurinn var fyrst og fremst minn að fá að vera með. Og að fá að enda landsliðsferilinn á EM 2024, sem var búið að vera yfirlýst markmið líðsins í nokkur ár var mér ótrúlega dýrmætt. Ég hef gengið í gegnum hæðir og lægðir í þessum bolta, unnið, tapað, skapað minningar, átt ógleymanleg móment, lært, þroskast, þróast, verið partur af liði, lært samskipti og samvinnu, þurft að vera skipulögð og í góðri rútínu, upplifað allskonar ævintýri og ferðalög og það allra mikilvægasta kynnst fólki og vinum fyrir lífstíð."

Færir sig út í þjálfun

Þrátt fyrir að leikmannaferlinum sé lokið þá gerir hún ekki ráð fyrir því að handboltinn fari frá sér.

,,Ég hugsa mér að hlutverkið bara breytist og ég færi mig út í þjálfun, ég finn mig vel í því. Hvort sem það gerist fljótlega eða eftir einhvern tíma. Ég er nú þegar með einhver staðfest handboltaverkefni," sagði Sunna og nefnir þar verkefnið Handbolti fyrir alla sem hún vonast að haldi áfram að vaxa og dafna.

,,Það verkefni gerir einstaklingum með sérþarfir eða sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi möguleika á að mæta á handboltaæfingu á eigin forsendum. Verkefnið er samfélagslega þarft og stækkar íþróttina okkar enn meira. Ástríðan fyrir íþróttinni er langt í frá farin þrátt fyrir að hún sé hætt að beinast að mér sem leikmanni. Ég er alltaf að bæta við mig þekkingu og mig langar að hjálpa ungum leikmönnum að ná sínum markmiðum. Ég á mér líka draum um að ennþá fleiri stelpur fari að æfa handbolta og að við búum til þannig umhverfi fyrir þær að þær haldist lengur í íþróttinni. Íþróttir hafa svo mikið forvarnargildi og eru eitt besta uppeldistæki sem til er. Áfram Handbolti," sagði Sunna Jónsdóttir að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top