Ungur og efnilegur markmaður framlengir veruna hjá Gróttu

Soffía Helen Sölvadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028.

Soffía Helen er 15 ára gömul og er enn gjaldgeng í 4.flokk félagsins. Hún er ein af markvörðum U16 ára landsliðs kvenna. Hún hefur fengið eldskírn sína í meistaraflokki í vetur en auk þess að æfa með meistaraflokki að þá hefur hún varið sín fyrstu skot í þeim tveimur leikjum sem hún hefur tekið þátt í.

"Það eru virkilega góð tíðindi að Soffía hafi skrifað nýjan samning en hún er virkilega efnilegur markvörður. Það verður gaman að sjá hana þroskast í Gróttubúningnum en miklar vonir eru bundnar við Soffíu í framtíðinni" segir í tilkynningu frá Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top