Í kvöld mættust Stjarnan og Grótta í oddaleik í úrslitaeinvígi umspils um Olís sæti. Gróttu stelpur mættu mun ákveðnari til leiks og voru miklu frískari í fyrri hálfleik. Eftir 10 mínútna leik var staðan 3-6. Þær fóru svo fljótlega í 4-10 og Stjörnu stúlkur heillum horfnar. Áfram hélt munurinn að vera 5-6 mörk og spennustigið frábært hjá Gróttu á meðan Stjarnan voru engan veginn að finna taktinn. Fyrstu 10 mínútur seinni hálfleik voru Gróttu stelpur áfram betri aðilinn en þá fóru Stjörnu stelpur að taka við sér. Þegar þetta var að gerast missti Grótta sinn besta leikmann, hana Ídu Margréti, útaf með 3x2 mín brottvísanir. Munaði svo sannarlega miklu um það. Gróttu stelpur misstu flugið eftir það og misstu trú enda að missa sinn besta sóknar- og varnarmann útaf. Stjarnan komst svo yfir í stöðunni 21-20 þegar 10 mínútur voru eftir. Lokamínúturnar voru spennandi en Grótta náði hinsvegar aldrei að jafna leikinn. Lokatölur urðu 25-23 fyrir heimakonum í Stjörnunni. Hjá Gróttu var Andrea Gunnlaugs góð í markinu með 12 bolta varða. Katrín Scheving var markahæst með 7 mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.
Í stöðunni 10-15 fyrir Gróttu kom gríðarlega mikil markaþurrð og var ekkert skorað í rúmar 9-10 mínútur. Grótta bætti svo við einu marki fyrir lok fyrri hálfleiks og staðan í hálfleik var 10-16.
Ótrúlegu einvígi lokið. Þvílíkar sveiflur og sviptingar. Frábær auglýsing fyrir kvennahandboltann. Þó að Grótta hafi tapað einvíginu að þá geta þær svo sannarlega gengið stoltar frá þessu. Þetta einvígi sýndi svo um munaði að við verðum að fá 10 liða úrvalsdeild. Vonandi verður það keyrt í gegn á ársþinginu 8. maí.
Hjá Stjörnunni var Hrafnhildur stórkostleg með 17 bolta varða þrátt fyrir að hafa ekki byrjað leikinn. 63% markvarsla. Inga Maria Roysdóttir setti 6 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.