
Haukar tryggðu sér oddaleik í undanúrslitaeinvíginu gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn um helgina þegar liðið vann ÍBV á heimavelli 26-23. Liðin mætast í oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 18:00 og verður leikurinn sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Rætt var um frammistöðu Söru Sifjar Helgadóttur markvarðar Hauka í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans og auk þess var rætt um frammistöðu hennar í uppgjörsþætti Handkastsins. Sara Sif var hreint út sagt mögnuð í marki Hauka og varði 21 skot og var með 48,8% markvörslu sem sést ekki á hverjum degi. ,,Hún var rétt undir 50% markvörslu og þetta voru alvöru færi sem hún var að taka. Bæði hraðarupphlaup, víti, skot fyrir utan, hornafæri og þetta var eiginlega ótrúlega," sagði Rakel Dögg Bragadóttir í Handboltahöllinni. ,,Það var stundum eins og það væri tveir markmenn í markinu, það voru meiri líkur að hún myndi verja heldur en ekki oft á tíðum," bætti Vignir Stefánsson við. Þá var einnig rætt um ótrúlega frammistöðu Söru Sifjar í uppgjörsþætti Handkastsins í gærkvöldi þar sem spáð var í spilin fyrir leik kvöldsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.