Verður Elvar Örn liðsfélagi Hauks?
Sævar Jónasson

Þýska handboltaliðið Rhein-Neckar Löwen hefur augastað á íslenska landsliðsmanninum Elvari Erni Jónssyni leikmanni Magdeburg. Elvar Örn er á sínu fyrsta tímabili hjá Magdeburg eftir að hann gekk í raðir félagsins frá MT Melsungen.

Samkvæmt fréttum SportBild eru Rhein Neckar Lowen að skoða möguleikann á að bæta Elvari í hópinn sinn, en hann hefur vakið athygli með sterkri frammistöðu bæði með félagsliði sínu og íslenska landsliðinu.

Haukur Þrastarson leikur með Rhein Neckar Lowen og hefur stimplað sig inn sem einn mikilvægasta leikmann liðsins.

Sebastian Heymann sem átti að ganga til liðs við Hannover-Burgdorf sumarið 2027 frá Rhein Neckar Löwen gengur í raðir félagsins í sumar eftir að Hannover-Burgdorf keypti upp samninginn hans.

Samkvæmt Sport Bild er Elvar Örn efsti kostur Rhein-Neckar Löwen. Í umfjöllun miðilsins kemur einnig fram að Elvar Örn sé ekki andsnúinn því að færa sig yfir til Löwen, enda hafi hann ekki verið fullkomlega sáttur við hlutverk sitt og spiltíma hjá Magdeburg.

Þó er talið ólíklegt að af félagaskiptum verði á næstunni, og líklegra að þau gætu ekki orðið að veruleika fyrr en árið 2027, þar sem Magdeburg hefur takmarkaðan áhuga á að láta hann fara.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top