Oddaleikur Stjörnunnar og Gróttu er í kvöld í Mýrinni Garðabæ og hefjast leikar klukkan 19:30. Einvígið er búið að vera ótrúlegt hingað til og erfitt að rýna í hverju við eigum von á í kvöld. Sá sem þetta ritar heyrði í aðstoðarþjálfara Stjörnunnar honum Arnari Daða Arnarssyni sem er jafnframt annar af ritstjórum þessarar síðu ásamt Styrmi Sigurðssyni líkt og allir vita. "Þrátt fyrir stóra sigra í síðustu tveimur leikjum hafa allir fjórir leikirnir verið hörkuleikir og ég geri ekki ráð fyrir öðru en að oddaleikurinn verði naglbítur. Í síðustu tveimur leikjum er leikurinn í járnum í 40 mínútur en síðan kemur góður kafli hjá sigurliðinu sem hefur klárað leikina með stæl. Það hefur verið mjög gaman að taka þátt í þessum leikjum og ég get ekki séð annað en að sú umræða sem hefur verið uppi í handboltahreyfingunni síðustu vikur og mánuði um mikilvægi þess að fjölga liðum í Olís-deildinni úr 8 liðum í 10 kristallist í þessu einvígi. Þetta eru tvö hörkulið sem ég sé ekki, afhverju ættu ekki að vera bæði að spila í deild þeirra bestu á næsta ári." ,,Markvarslan hefur haft mikil áhrif á úrslitin í leikjunum hingað til og síðan hafa bæði lið verið að spila hörku varnarleik. Ég tel að úrslitin ráðist á þessum tveimur atriðum í kvöld. Við höfum ekki náð að spila okkar leik á heimavelli í þessu einvígi og nú fáum við lokatækifæri til að ljúka þessum viðburðaríka vetri með þeirri spilamennsku sem við leitumst eftir. Hvort það dugi til verður að koma í ljós því Grótta hefur á sama tíma gert hrikalega vel í leikjunum í Garðabæ og verið einfaldlega betri aðilinn heilt yfir," sagði Arnar Daði að lokum. Leikurinn í kvöld verður sýndur í beinni útsendingu í Handboltapassanum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.