Sigurður Jefferson Guarino sem á dögunum gekk í raðir bikarmeistara Hauka frá HK hefur verið valinn í nýjasta landsliðshóp Bandaríkjanna. 16 leikmenn voru valdir í verkefnið sem framundan er. Framundan er Norca-meistaramótið sem fram fer daga 11.-17.maí en mótið fer fram í Bandaríkjunum nánar tiltekið í í TBK Bank Sports Complex höllinni í Bettendorf í Iowa. Þar mætir bandaríska landsliðið Grænlandi, Mexíkó og Kanada en um er að ræða undankeppni fyrir heimsmeistaramótið 2027. Á mótinu taka þátt landslið frá Norður-Ameríku og Karíbahafi. Sigurður Jefferson sem leikið hefur verið með HK allan sinn feril lék sinn fyrsta landsleik fyrir Bandaríkin á síðasta ári og hefur nú fest sig í sessi í landsliðshópi Bandaríkjanna. Liðið gæti unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu á næsta ári með góðum árangri í maí og þá verður að teljast ansi líklegt að fyrsta heimsmeistaramótið myndi bíða Sigurðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.