
ÍBV tók á móti Val í öðrum leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna í Vestmannaeyjum í kvöld. Valur leiddi einvígið 1-0 fyrir leikinn en þær unnu sex marka sigur á Hlíðarenda á laugardaginn. Valskonur byrjuðu leikinn betur í kvöld og náðu fljótlega þriggja marka forystu í fyrri hálfleik þar sem Hafdís Renötudóttir var öflug í marki þeirra. Valskonur náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik en ÍBV náði að minnka muninn niður í tvö mörk, 13-15, þegar hálfleiksflautan gall og þannig stóðu leikar í hálfleik. Líkt og í fyrri hálfleik þá byrjaði Valur síðari hálfleikinn sterkt og voru komnar sex mörkum yfir um miðbik hálfleiksins í 18-24 en þá skellti Ólöf Maren Bjarnadóttir, markmaður ÍBV, í lás og Eyjakonur náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. Nær komust þær þó ekki og 23-25 sigur Valskvenna staðreynd sem skoruðu einungis eitt marka á síðasta korteri leiksins. Valur eru því komnar í 2-0 í einvíginu og geta tryggt sér titilinn á heimavelli á laugardaginn næstkomandi þegar ÍBV kemur aftur í heimsókn. Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í liði ÍBV í kvöld með 7 mörk en hjá Val var Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir markahæst með 7 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.