
Valur tók á móti ÍBV í fyrsta leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Hlíðarenda í dag. ÍBV mætti til leiks án Amaliu Fröland sem meiddist í síðasta leik og hafði ÍBV reynt að fá undanþágur frá HSÍ til þess að sækja nýjan markmann en hafði ekki erindi sem erfiði. Tara Sól Úranusdóttir tók þó fram skónna á ný og byrjaði í markinu hjá ÍBV í dag nokkuð óvænt. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var nánast jafnt á öllum tölum leiksins. Það voru þó Eyjakonur sem enduðu fyrri hálfleikinn af miklum krafti og leiddu með tveggja marka forskoti þegar liðin gengu til búningsherbergja, 18-20. ÍBV mættu mjög sterkar til leiks í síðari hálfleik og náðu mest sex marka forskoti í 19-25. Þó virtust Valskonur vakna til lífsins og náðu að minnka muninn hægt og rólega. Þegar 15 mínútur voru til leiksloka var staðan orðin jöfn í 28-28. Í stöðunni 32-32 fór allt í baklás hjá Eyjakonum og Valur sigldi fram úr undir restina og vann að lokum öruggan sex marka sigur 39-33 sem gefur þú ekki alveg rétta mynd af leiknum. Elísa Elíasdóttir og Lovísa Thompson voru frábærar í liði Vals í dag og skoruðu bæði 11 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir allt í öllu og skoraði 14 mörk. Valur er því komið í 1-0 í einvíginu en næsti leikur fer fram á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.