Tímabilinu mögulega lokið hjá Ými
Tom Weller / AFP

Óvíst er hvort og hvenær landsliðslínumaðurinn, Ýmir Örn Gíslason snúi aftur á völlinn með félagi sínu, Gummersbach í þýsku Bundesligunni.

Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið á dögunum en Ýmir var ekki í leikmannahópi Göppingen í jafnteflinu gegn Gummersbach á dögunum. Göppingen á fjóra leiki eftir af deildinni en liðið siglir lygnan sjó um miðja deild með 29 stig í 9.sæti deildarinnar.

,,Ég er búinn að vera mjög slæmur í ökklanum seinustu 6-8 vikur. Núna er ég í endurhæfingu til að ná reyna ná bata. Ég tók þá ákvörðun með félaginu að spila á móti Rhein Neckar Löwen í síðustu viku og taka síðan pásu. Leikurinn gegn Gummersbach var því fyrsti leikurinn sem ég missti af. En við tókum ákvörðun að ég myndi ekki snúa til baka fyrr en ég verð orðinn 100%. Hvenær það verður, veit ég ekki," sagði Ýmir í samtali við Handkastið.

Ýmir var ekki valinn í landsliðshóp Íslands fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum síðar í mánuðinum. Ýmir sagði að hann hafi verið í virku samtali við Snorra Stein í aðdragandanum.

,,Ég hef verið í góðu samtali við Snorra allan tímann," sagði Ýmir.

Göppingen fær HSG Wetzlar í heimsókn í næstu umferð en liðið mætir síðan Hamburg, Stuttgart og Bergischer í lokaumferðum deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top