Norðurlöndin: Einar Bragi á lífi – Óvænt tap Tryggva
Kristeinn Steinn Traustason

Úrslitakeppnirnar í Noregi og Svíþjóð héldu áfram í dag. Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar hans í Kristianstad voru með bakið upp við vegg þegar liðið fékk Alingsås í heimsókn í þriðja leik liðanna en Alingsås var óvænt 2-0 yfir í einvíginu fyrir leikinn í dag.

Kristianstad náði hinsvegar að halda lífi með sigri í dag með einu marki 25-24 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 14-14. Alingsås var með forystu nánast allan fyrri hálfleikinn en taflið snerist við í seinni hálfleik þar sem Kristianstad var með forystu nánast allan tímann eftir að hafa komist strax 18-14 yfir í upphafi seinni hálfleiks.

Einar Bragi skoraði eitt mark í leiknum í dag en sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson var markahæstur með átta mörk. Liðin mætast næst á miðvikudaginn á heimavelli Alingsås.

Í Noregi mættust deildarmeistarar Elverum og Drammen í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum en þar var heldur betur dramatík þar sem Drammen vann með einu marki 35-36 eftir framlengdan leik. Tryggvi Þórisson skoraði tvö mörk fyrir Elverum í leiknum en Kevin Maagerø Gulliksen og Mario Matic voru markahæstir með átta mörk fyrir Elverum. Ísak Steinsson kom ekkert við sögu í marki Drammen.

Þar með er ljóst að tvö efstu liðin eftir deildarkeppnina, Elverum og Kolstad eru 0-1 undir eftir fyrstu umferðina í undanúrslitunum en Kolstad tapaði gegn Bergen í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top