
Einn leikur fór fram í þýsku Bundesligunni í dag þegar heimamenn í Hamburg tóku á móti TVB Stuttgart. Heimamenn fóru með sigur úr bítum í leiknum 31-26 eftir að hafa verið 16-11 yfir í hálfleik. Hamburg hafði yfirhöndina allan leikinn og náðu snemma í seinni hálfleik átta marka forystu í stöðunni 20-12. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Hamburg í leiknum, gaf eina stoðsendingu og stal tveimur boltum. Frederike Bo Andersen var markahæstur hjá Hamburg með sjö mörk úr sjö skotum en hjá Stuttgart var Svissverjinn, Lenny Rubin markahæstur með tíu mörk. Hamburg er áfram í 10.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 27 stig, fimm stigum meira en Stuttgart sem er í 12.sætinu þegar fjórar umferðir eru eftir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.