

Landsliðsmaðurinn, Teitur Örn Einarsson leikmaður Gummersbach framlengdi samningi sínum við félagið á dögunum. Núverandi samningur Teits við Gummersbach rennur út í sumar en nú hefur hann framlengt samningi sínum til eins árs í viðbót. sinn við liðið. Teitur gekk í raðir Gummersbach sumarið 2024 og er því á sínu öðru tímabili með félaginu. ,,Ég er bara mjög ánægður að vera áfram hjá Gummersbach. Ég er að spila mikilvægt hlutverk í liðinu sem mér líður mjög vel í og hjálpar mér í mínum ferli að verða betri handboltamaður heilt yfir. ,,Það voru nokkur önnur lið sem komu til greina en Gummersbach var klárlega í fyrsta sæti fyrir mig," sagði Teitur en hann var meðal annars orðaður við HSG Wetzlar og Göppingen í janúar. Þar er með ljóst að þrír Íslendingar leika með liðinu á næstu leiktíð en Elliði Snær Viðarsson hefur leikið með liðinu undanfarin ár og þá gengur Garðar Ingi Sindrason í raðir félagsins frá FH í sumar.
Það sem hafði mest áhrif á ákvörðun mína er hve góður kúltúr er í félaginu. Það eru allir að toga í sömu átt að reyna að koma félaginu á toppinn og mér finnst verkefnið mjög skemmtilegt. Með Evrópuleikjum á næsta tímabili verður mikilvægt fyrir okkur að vera með breiðan hóp," sagði Teitur í samtali við Handkastið á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.