Færeyski landsliðsmaðurinn og leikmaður Stjörnunnar Natasja Hammer er ólétt. Natasja er annar leikmaður kvennaliðs Stjörnunnar sem er ólétt en Handkastið greindi frá því á dögunum að Sara Katrín Gunnarsdóttir væri einnig ólétt. Þar með er ljóst að hvorugar verða með Stjörnunni frá upphafi næsta tímabils. Það verður líka að teljast líklegt að Natasja Hammer missi af Evrópumótinu sem fram fer í byrjun desember en hún hefur verið hluti af færeyska landsliðinu í síðustu verkefnum en liðið tryggði sér sæti á Evrópumótinu í síðasta mánuði. Natasja lék með Stjörnunni í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni á dögunum en þar vann Stjarnan undanúrslitaeinvígið gegn FH 2-0 og vann síðan Gróttu í oddaleik 3-2 eftir að hafa lent 1-2 undir í einvíginu. Í kjölfarið tilkynnti hún um óléttuna. Natasja gekk í raðir Stjörnunnar fyrir leiktíðina en hún endaði sem lang markahæsti leikmaður liðsins í Olís-deildinni með 134 mörk en Eva Björk Davíðsdóttir kom næst með 95 mörk. Stjarnan endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar annað árið í röð en miklar breytingar verða á liðinu fyrir næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.