Er Lovísa á förum frá Val?
Egill Bjarni Friðjónsson

Í gærmorgun var það tilkynnt að landsliðskonan, Thea Imani Sturludóttir leikmaður Vals myndi leika í Rúmeníu á næstu leiktíð en Thea gekk í raðir rúmenska félagsins Craiova.

Rætt var um félagaskiptin í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem einnig var rætt um þann orðróm að Lovísa Thompson einn allra besti leikmaður Vals á tímabilinu gæti einnig verið á förum frá Val í sumar og hafi verið orðuð við för erlendis.

Sigurjón Friðbjörn Björnsson einn af gestum Handkastsins sagðist hafa heyrt af því fyrir nokkru síðan að Lovísa væri að skoða tilboð erlendis frá en meðal annars hefur Handkastið heyrt af því að portúgalska félagið, Benfica hafi sýnt landsliðskonunni áhuga.

Lovísa verður í eldlínunni í Vestmannaeyjum í kvöld þegar Valur heimsækir ÍBV í öðrum leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins. Valur leiðir í einvíginu 1-0.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top