

ÍBV tapaði öðrum leik sínum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val í gær á heimavelli, 25-23 en Valur náði góðu forskoti um miðbik seinni hálfleiks en ÍBV náði að saxa á forskotið undir lokin og lokatölur eins og fyrr segir 25-23. Staðan í einvíginu er því orðin 2-0 fyrir Val en liðin mætast í þriðja sinn á laugardaginn á heimavelli Vals þar sem Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV var allt annað en sáttur í viðtali við mbl.is eftir leik þar sem hann gagnrýndi dómara leiksins þá Svavar Ólaf Pétursson og Þorleif Árna Björnsson. Magnús segir það sérstakt að ekki skuli vera til dómarapar til að dæma þennan leik en Svavar Ólafur og Þorleifur Árni eru ekki vanir að dæma saman. „Við erum að spila mikið maður á mann bolta, fara út fyrir blokkeringar og ef andstæðingurinn fær að vinna sig inn í teig í hvert skipti og koma sér svo í þægilega stöðu aftur að þá er ekkert hægt að spila þessi kerfi. Mér fannst dómarar leiksins vera ósamkvæmir sjálfum sér, þeir flautuðu á þetta einu sinni og ég segi þá bara ef þetta gerist fimm sinnum í viðbót þá flautaru bara fimm sinnum í viðbót á sama dóminn. Reglurnar hljóta að vera til þess,“ sagði Magnús og hélt áfram: „Það er auðvitað margt annað sem við þurfum að líta í, við erum að spila á móti hörkuliði Vals. Það er algjör óþarfi að Valur spili á útivelli með einhvern afslátt, þær þurfa þess ekkert og eru ekki að biðja um það. Ég er frekar ósáttur núna en svo getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér í eitthvað af þessum skiptum en ég er ekki sáttur." Þá bendir hann á að á höfuðborgarsvæðinu séu alla jafna tveir eftirlitsmenn þegar svona langt í úrslitakeppnina er komið en í Vestmannaeyjum er alltaf sami eftirlitsmaðurinn, Eyjamaðurinn Sindri Ólafsson. „Mér finnst sérstakt að það skuli ekki vera til dómarapar til að dæma þennan leik, það þarf að tína til dómara úr tveimur dómarapörum til að dæma. Það er því bara erfiðara fyrir þá að halda sömu línunni út í gegn, það er ósanngjarnt að ætlast til að tveir dómarar sem eru ekki par séu að halda sömu línunni báðu megin. Við gerum þessari íþrótt ekki hærra undir höfði en það að alltaf er bara einn eftirlitsdómari í Eyjum og ekkert VAR, en í leikjunum sem fara fram á höfuðborgarsvæðinu eru tveir eftirlitsdómarar og VAR. Þarna er verið að gjaldfella deildina og stelpurnar eiga einfaldlega meira skilið.“ Lengra og ítarlega viðtal við Magnús má lesa hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.