Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hefur hafið skoðun á alvarlegu máli sem upp kom í öðrum úrslitaleik Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitil kvenna í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld. Málið snýr að fordómafullum hrópum úr stúku sem beindust að Hafdísi Renötudóttur, markverði Vals og íslenska landsliðsins. „Við lítum málið grafalvarlegum augum og munum fylgja þessu fast eftir og nýta til þess regluverk okkar,“ sagði Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSÍ við handbolta.is. Handkastið greindi fyrst allra frá málinu fyrr í dag og birti myndskeið þar sem má heyra í stuðningsmanni kalla inn á völlinn: ,,Hafdís fílar skæri." FORDÓMAFULL UMMÆLI STUÐNINGSMANNA ÍBV Í GARÐ HAFDÍSAR „HSÍ fordæmir hvers kyns fordóma og við munum grípa í taumana vegna þessa og koma þessu í farveg,“ bætti Sólveig við í samtali við Handbolta.is. Sólveig vísaði einnig í siðareglur HSÍ en 6. og 7. grein þeirra er að finna hér fyrir neðan. 6. Gættu jafnræðis og varastu að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa, t.d. hvað varðar kyn, kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslega stöðu, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins. Allri mismunun er hafnað. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði málið komið á borð HSÍ þar sem þess var krafist skýrra viðbragða frá Handknattleikssambandi Íslands, þar sem bent er á að sambandinu beri skylda til að vernda leikmenn gegn slíkri framkomu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.