Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld þegar 31.umferð deildarinnar hófst. Göppingen vann eins marks sigur gegn Rúnari Sigtryggssyni og lærisveinum hans í HSG Wetzlar og þá fór Haukur Þrastarson á kostum í sex marka útisigri Rhein Neckar Löwen gegn TVB Stuttgart. Göppingen vann endurkomusigur á heimavelli gegn HSG Wetzlar sem eru í mikilli fallbaráttu en Wetzlar var 27-29 yfir þegar rúmlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Göppingen skoruðu hinsvegar fjögur næstu mörk og breyttu stöðunni í 31-29 en lokatölur urðu 31-30 Göppingen í vil. Ludvig Jurmala var markahæstur í liði Göppingen með níu mörk en Tristan Kirschner var markahæstur í liði Wetzlar með sex mörk. Göppingen er áfram í 9.sæti deildarinnar en Wetzlar eru áfram í mikilli fallbaráttu, stigi fyrir ofan fallsætið með 15 stig í 16.sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir. Í Stuttgart var Haukur Þrastarson áfram á eldi í liði Rhein Neckar Löwen og skoraði tíu mörk og gaf fimm stoðsendingar í 26-32 sigri liðsins. Lenny Rubin var markahæstur í liði Stuttgart með sex mörk. Rhein Neckar Löwen fór upp fyrir Melsungen með sigrinum og er nú í 7.sæti deildarinnar með 35 stig en Stuttgart er áfram í 12.sæti deildarinnar með 22 stig. Úrslit kvöldsins: Stuttgart - Rhein Neckar Löwen 26-32
Göppingen - Wetzlar 31-30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.