

Sara Kristín Pedersen hefur framlengt samningi sínum við Fjölni en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni fyrr í dag. ,,Sara kemur úr öflugum 2007 árgangi Fjölnis og er nú að hefja sitt fimmta ár með meistaraflokki félagsins, þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur þegar leikið yfir 70 leiki fyrir Fjölni og safnað að sér dýrmætri reynslu á stuttum tíma," segir í tilkynningunni frá Fjölni en ekki er tekið fram hversu langan samning Sara Kristín gerir við Fjölni. Magnús Arnarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna, segir ánægjulegt að halda Söru áfram hjá félaginu: „Við erum afar glöð að Sara Kristín verði áfram með okkur og hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að vaxa og blómstra í Fjölnisbúningnum.“ Sara Kristín er þá spennt fyrir áframhaldinu. „Ég er mjög spennt að halda áfram með félaginu og hlakka til að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera saman.“ ,,Markmið liðsins eru skýr fyrir komandi tímabil þar sem stefnan er sett á að halda áfram uppbyggingu liðsins og berjast í fremstu röð. Með áframhaldandi framlagi Söru Kristínar styrkist hópurinn enn frekar fyrir verkefnin fram undan. Sara hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og framlag hennar innan sem utan vallar fer ekki fram hjá neinum. Á síðustu árum hefur hún verið valin efnilegasti leikmaður meistaraflokksins og á síðasta lokahófi var hún einnig valin besti liðsfélaginn," segir ennfremur í tilkynningunni. Þór Guðmundsson tók nýverið við liði Fjölnis af Gunnari Val Arasyni en Fjölnir leikur áfram í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.